Innlent

Grétar Mar leiðir listann

Grétar Mar Jónsson
Grétar Mar Jónsson

Grétar Mar Jónsson, skipstjóri og varaþingmaður, mun leiða lista Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar í vor. Þetta var kynnt á fundi í Fræðasetrinu í Sandgerði í gær.

Grétar Mar var á sínum tíma forseti Farmanna- og fiskimannasambandsins. Hann hefur einu sinni tekið sæti á þingi fyrir Gunnar Örn Örlygsson.

Annað sætið skipar Óskar Þór Karlsson, fiskverkandi í Reykjanesbæ, og það þriðja Hanna Birna Jóhannsdóttir, stuðningsfulltrúi í Vestmannaeyjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×