Tónlist

Hljómfagur hvalreki

Danski sellóleikarinn Erling Blöndal Bengtsson heldur tónleika í Laugarborg í Eyjafjarðarsveit í kvöld ásamt píanóleikaranum Ninu Kavtaradze og Einari Jóhannessyni klarinettuleikara.

Erling er íslenskum tónleikagestum að góðu kunnur en hann hefur haldið reglulega tónleika hér á landi um áratugaskeið enda á Ísland sérstakan stað í hjarta hans og hann á hingað rætur að rekja. Á tónleikunum í kvöld leikur hann ásamt tengdadóttur sinni en þau héldu einnig tónleika hér á landi fyrir fjórum árum.

Hann var aðeins þriggja ára þegar faðir hans kynnti hann fyrir sellóinu og ári síðar var hann farinn að koma fram á tónleikum. Sextán ára var honum veitt innganga í einn virtasta tónlistarskóla Bandaríkjanna, Curtis Institute of Music í Fíladelfíu, og varð nemandi hins heimsfræga sellósnillings Gregors Píatígorskís. Erling hefur komið fram sem einleikari víða um heim og leikið með flestum af fremstu hljómsveitum veraldar og hefur hljóðritað yfir 50 hljómplötur og geisladiska. Hann hefur enn fremur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir leik sinn.

Á efnisskrá tónleikanna í kvöld eru verk eftir Ludwig van Beethoven, Johannes Brahms og Dímítríj Sjostakovitsj.

Tónleikar hefjast kl. 20.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.