Tónlist

Til minja um Leg

Davíð Þór, leikstjórinn Stefán Jónsson og Hugleikur Dagsson eru á meðal þeirra sem standa að baki söngleiknum Legi sem verður frumsýndur hinn 8. mars.
Davíð Þór, leikstjórinn Stefán Jónsson og Hugleikur Dagsson eru á meðal þeirra sem standa að baki söngleiknum Legi sem verður frumsýndur hinn 8. mars. MYND/Valli

Hljómsveitin Flís er um þessar mundir að leggja lokahönd á nýja plötu sem hefur að geyma tónlist við söngleikinn Leg sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu 8. mars.

Platan er væntanleg í búðir á svipuðum tíma. Allir textar plötunnar eru eftir Hugleik Dagsson, höfund söngleiksins, en tónlistin er eftir Flís í samstarfi við Hugleik. „Þetta varð allt til síðasta sumar. Þá fórum við í Svarfaðardal, ég og Hugleikur, og sömdum fullt af dóti. Við héldum síðan áfram seinna um haustið og svo komu hinir í Flís inn í þetta og þá fór þetta á flug,“ segir Davíð Þór Jónsson, meðlimur Flís.

Davíð segir það erfitt að bera lögin í Legi saman við fyrstu plötu Flís, sem sló í gegn hérlendis fyrir þarsíðustu jól. Um gjörólík verkefni sé að ræða. Viðurkennir hann þó að platan hafi að geyma áhrif allt frá tónskáldinu Wagner yfir í rokksveitina Queen. „Þetta er fyrst og fremst tengt sýningunni. Þessi plata er fyrir fólk sem fer á sýninguna og getur síðan átt eitthvað til minja um hana,“ segir hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.