Tónlist

Nýárstónleikar Tríó Artis

Árlegir nýárstónleikar Ljúf tónlist fyrir flautu, víólu og hörpu.
Árlegir nýárstónleikar Ljúf tónlist fyrir flautu, víólu og hörpu. MYND/Vilhelm

Tríó Artis heldur árlega nýárstónleika sína í Mosfellskirkju í Mosfellsdal á morgun sunnudag. Þetta er í fjórða skiptið sem tónleikarnir eru haldnir en á efnisskrá er jafnan ljúf tónlist fyrir flautu, víólu og hörpu.

Í ár leikur tríóið verk eftir Carl Philipp Emanuel Bach, Claude Debussy, Arnold Bax og François Devienne. Þess má geta að tríósónata Claude Debussy er fyrsta verkið sem skrifað var fyrir flautu, víólu og hörpu. Síðar hafa mörg tónskáld fetað í fótspor Debussys og einnig samið verk fyrir þessa hljóðfærasamsetningu sem þykir mjög sérstök en jafnframt falleg.

Tríó Artis hefur gert það að hefð að flytja sónötu Debussy á hverju ári á nýárstónleikunum í Mosfellskirkju enda merkilegt verk sem vex við hverja hlustun.

Tríó Artis var stofnað í Amsterdam árið 2001 en það skipa þau Kristjana Helgadóttir, flautuleikari, Þórarinn Már Baldursson, víóluleikari og Gunnhildur Einarsdóttir hörpuleikari.

Tónleikarnir hefjast kl. 17 og er aðgangur að þeim ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.