Tónlist

Queen besta breska hljómsveitin

Queen. Hinn skrautlegi klæðaburður sveitarinnar vakti ekki síður athygli en tónlist hennar.
Queen. Hinn skrautlegi klæðaburður sveitarinnar vakti ekki síður athygli en tónlist hennar.

Ofurhljómsveitin Queen er besta breska hljómsveitin að mati hlustenda BBC Radio 2. Alls bárust tuttugu þúsund atkvæði og skutu Freddie Mercury og félagar hljómsveitum á borð við Rolling Stones, Bítlana, Take That og Oasis ref fyrir rass. Hlustendur voru beðnir um að gefa hljómsveitum einkunn fyrir mikilvæga þætti og nægir þar að nefna texta- og lagasmíðar, framkomu á tónleikum og útgeislun.

Queen var ein þeirra fimm hljómsveita sem komust í úrslit og hafði sigur eftir harða keppni við Bítlana en einungis munaði fjögur hundruð atkvæðum á þeim.

Bítlarnir Af mörgum talin áhrifamesta rokksveit síðari tíma en greinilega ekki sú besta að mati hlustenda BBC Radio 2.

Queen varð hvað frægust fyrir ákaflega líflega framkomu söngvarans Freddies Mercury en hann lést úr alnæmi árið 1991. Hljómsveitin hélt hins vegar áfram störfum og frá árinu 2004 hefur Paul Rodgers gegnt stöðu forsprakka. Samkvæmt síðustu fregnum úr herbúðum sveitarinnar er stefnt á nýja plötu á næstunni með þessari meðlimaskipan en söngleikur byggður á lögum Queen, We Will Rock You, er sýndur fyrir fullu húsi í London og víðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.