Innlent

Útvarpsstöð Kántríbæjar hættir útsendingum á morgun

Hallbjörn Hjartarson, betur þekktur sem Kúreki Norðursins.
Hallbjörn Hjartarson, betur þekktur sem Kúreki Norðursins. MYND/DV

Loka þarf útvarpsstöðinni Kántríbæ um óákveðin tíma vegna fjárhagserfiðleika. Miklar bilanir hafa hrjáð stöðina að undanförnu og þurfti meðal annars að endurnýja endurvarpsendi á Sauðarkróki og reyndist það dýrara en áætlað var í upphafi. Kostnaður vegna væntanlegra stefgjalda knýr Hallbjörn þess vegna til þess að loka stöðinni um óákveðinn tíma.

Óvíst er hvort að stöðin geti tekið til starfa aftur en Hallbjörn hefur sjálfur staðið að kostnaði við útvarpstöðina að undanförnu. Í viðtali við fréttamann Vísis sagði hann stöðina hafa verið rekna sem menningarlegt átak án þess að nokkrar tekjur komi inn. Aðspurður segist Hallbjörn ekki vita ástæðuna fyrir því en hann vonast til þess að geta opnað útvarpsrásina á ný eftir því sem sól hækkar á lofti og Kántríbær opnar sumarstarfsemi sína.

Kántríbær sendir út í Skagafirði, nær allri Húnavatnssýslu, Strandir sem og allt hálendi Íslands.

Hallbjörn mun ávarpa hlustendur Kántrístöðvarinnar klukkan fjögur á morgun og eftir það verður útvarpsstöðinn lokað. Í ávarpinu mun Hallbjörn segja þá skoðun sína að útvarpsrás hans ætti að njóta styrkja frá þeim sveitarfélögum sem ná útsendingum svo að útsending geti haldið áfram um ókomna tíð því enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×