Erlent

Flugdólgur fær þungan dóm

Yfirvöld í Tékklandi hafa ákært rússneskan mann fyrir að stofna farþegaflugvél í hættu, þegar hann reyndi að ryðjast inn í stjórnklefa hennar, á leiðinni frá Moskvu til Genfar. Vélin nauðlenti í Prag.

Áhöfn og farþegum Aeroflot vélarinnar tókst að yfirbuga manninn, og hann var handtekinn eftir lendinguna í Prag. Eitthundrað og sjötíu manns voru um borð í vélinni sem var af gerðinni Airbus 120. Talsmaður saksóknarans í Prag segir að maðurinn eigi yfir höfði sér átta til fimmtán ára fangelsi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×