Enski boltinn

Abramovich ætlar að minnka við leikmannakaup

Það skemmtilegasta sem Roman Abramovich gerir er að fylgjast með liði sínu í eldlínunni á Stamford Bridge.
Það skemmtilegasta sem Roman Abramovich gerir er að fylgjast með liði sínu í eldlínunni á Stamford Bridge. MYND/Getty

Rússneski auðkýfingurinn Roman Abramovich segir í viðtali við hið virta dagblað The Observer í Bretlandi að hann hyggist draga úr fjárveitingum til leikmannakaupa hjá félaginu á næstunni og leggja traust sitt á ungu leikmennina hjá félaginu. Rússinn kemur víða við í viðtalinu og greinir einnig frá sambandi sínu við Jose Mourinho.

"Okkar markmið er að framleiða okkar eigin leikmenn í gegnum akademíuna, sem er orðin mjög öflug. Við munum eyða minni pening á leikmannamarkaðinum í nánustu framtíð," segir Abramovich, en hann hefur gefið afar fá viðtöl síðan hann kom til Englands og tók yfir Chelsea árið 2003.

Abramovich segist meðal annars ekki þola að tapa. "Ég verð ótrúlega svekktur þegar við töpum. Ég á erfitt með að sætta mig við tap," sagði Rússinn en bætti því við að sælutilfinningin sem fylgdi meistaratitlinum 2005 hefði verið engri annari lík.

"Þeir sem þekkja mig hafa stundum haldið því fram að það sem ég er að gera hér hjá Chelsea sé bara eitthvað stundargaman og nú þegar við erum búnir að vinna deildina í tvígang þá langi mig að snúa mér að einhverju öðru. Þetta er einfaldlega ekki rétt," segir Abramovich einnig í viðtalinu.

"Þvert á móti er ég spenntari sem aldrei fyrr núna. Ég er spenntastur fyrir þetta tímabil heldur en þau fyrri sem ég hef verið hér. Hver einasti leikur er tilhlökkun fyrir mér. Titilinn sjálfur í lok tímabilsins er í raun aukaatriði - það er spennan fyrir hvern einasta leik sem er aðalmálið," sagði Rússinn.

Spurður um samband sitt við knattspyrnustjórann Jose Mourinho sagði Abramovich það vera fyrst og fremst faglegt. "Við erum ekki nánir en sambandið er samt nægilega náið," sagði Abramovich og reyndi að snúa sér undan spurningunni. "Ég ber mikla virðingu fyrir honum," bætti hann við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×