Enski boltinn

Curbishley: Við erum ekki áhugavert félag

Eggert Magnússon ætlar að láta Alan Curbishley fá pening til leikmannakaupa í janúar.
Eggert Magnússon ætlar að láta Alan Curbishley fá pening til leikmannakaupa í janúar.
Alan Curbishley, sem Eggert Magnússon réð sem knattspyrnustjóra West Ham fyrir skemmstu, óttast að félagið muni eiga erfitt með að sannfæra leikmenn um að ganga til liðs við það þegar leikmannamarkaðurinn opnar að nýju í janúar, vegna slakrar spilamennsku liðsins í ár.

Curbishley segist þurfa að styrkja lið sitt á ákveðnum vígstöðvum en ítrekar að vanda verði valið vel á leikmönnunum.

"Stjórnarformaðurinn segir að það sé til peningur til að kaupa leikmenn en hversu áhugavert ertu sem félag í þriðja neðsta sæti. Það vilja fáir fara til liðs sem er í fallbaráttu," sagði Curbishley í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×