Körfubolti

Félagsmet hjá Phoenix

Amare Stoudemire skoraði 28 stig og hirti 10 fráköst á aðeins 28 mínútum fyrir Phoenix í nótt
Amare Stoudemire skoraði 28 stig og hirti 10 fráköst á aðeins 28 mínútum fyrir Phoenix í nótt NordicPhotos/GettyImages

Phoenix Suns vann í nótt 15. leikinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann auðveldan sigur á Toronto Raptors á heimavelli sínum 115-98. Chicago Bulls tók á móti LA Lakers og vann 94-89.

Amare Stoudemire skoraði 28 stig og hirti 10 fráköst fyrir Phoenix í sigrinum á Toronto, Shawn Marion skoraði 17 stig og Steve Nash skoraði 10 stig og gaf 15 stoðsendingar, en þessir leikmenn spiluðu allir aðeins 28 míntútur í leiknum. TJ Ford var stigahæstur í liði Toronto með 19 stig og 9 stoðsendingar og nýliðinn Andrea Bargnani skoraði 18 stig og hirti 8 fráköst.

Luol Deng var atkvæðamestur í liði Chicago í sigrinum á LA Lakers sem sýndur var á NBA TV í nótt. Deng skoraði 23 stig og hirti 12 fráköst og Ben Gordon skoraði 22 stig. Kobe Bryant átti afleitan dag hjá Lakers þó hann hefði verið stigahæstur með 19 stig, en hann hitti aðeins úr 6 af 19 skotum sínum. Kwame Brown skoraði 18 stig og hirti 12 fráköst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×