Tónlist

Lay Low á Akureyri

Lay Low og Ívar Bjarklind verða saman á Græna Hattinum annað kvöld.
Lay Low og Ívar Bjarklind verða saman á Græna Hattinum annað kvöld.

Laugardagskvöldið 16. desember verða haldnir tónleikar á Græna Hattinum á Akureyri, þar sem fram kemur hin margrómaða tónlistarkona Lay Low og heimamaðurinn Ívar Bjarklind ásamt hljómsveit.

Lay Low (réttu nafni Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir) hefur fengið lofsamlega dóma fyrir fyrstu breiðskífu sína "Please Don't Hate Me" og hefur meðal annars verið tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna í fjórum flokkum. Hún kemur fram vopnuð gítar og sinni mögnuðu röddu, og flytur sína sérstöku blöndu af blús, rokki og sveitatónlist.

Ívar Bjarklind hefur einnig nýverið gefið út sína fyrstu plötu "Blóm eru smá", sem fullyrða má að sé einlægasta poppplata síðari ára. Gagnrýnandi Morgunblaðsins fór fögrum orðum um plötuna, og sagði hana "næstum því fullkomna". Ívar kemur fram með einvala lið hljóðfæraleikara, þar sem Orri Harðar fer fremstur meðal jafningja.

Hljómsveitina skipa annars þeir Orri Einarsson trommur, Heimir Freyr Hlöðversson píanó, Ragnar Emilsson gítar og Georg Bjarnason á bassa. Húsið er opnað klukkan 21:00, og aðgangseyrir er 1000 kr. en 800 kr. fyrir háskólanema. Það er hægt að lofa huggulegri stemningu og ljúfum tónum í húsakynnum Græna Hattarins næstkomandi laugardagskvöld, og eru Norðlendingar hvattir til að láta þetta tækifæri ekki fram hjá sér fara.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.