Enski boltinn

Terry fer fram á réttarhöld í máli sínu

John Terry fékk dularfullt rautt spjald gegn Tottenham í síðasta mánuði
John Terry fékk dularfullt rautt spjald gegn Tottenham í síðasta mánuði NordicPhotos/GettyImages
Enski landsliðsmaðurinn John Terry hjá Chelsea hefur farið fram á að réttað verði sérstaklega í máli sínu frá því þann 5. nóvember þegar hann fékk að líta rauða spjaldið í leik Tottenham og Chelsea. Terry segir dómarann Graham Poll hafa verið tvísaga þegar hann greindi frá ástæðu brottrekstursins og krefst þess að aganefndin hlusti á framburð sinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×