Enski boltinn

Wenger stoltur af sínum mönnum

Arsene Wenger
Arsene Wenger NordicPhotos/GettyImages

Arsene Wenger sagðist vera stoltur af sínum mönnum í dag eftir að Arsenal slapp með 1-1 jafntefli frá viðureign sinni við Chelsea á Stamford Bridge. Hann segir að mark Chelsea hefði aldrei átt að standa vegna þess að Ashley Cole hafi brotið af sér skömmu áður en Michael Essien jafnaði leikinn með frábæru skoti.

"Ég er mjög stoltur af strákunum í dag," sagði Wenger, en meðalaldurinn í varnarlínu Arsenal var rétt rúm 20 ár. "Við höfum spilað nokkra mjög erfiða leiki undanfarið og strákarnir stóðu sig með prýði. Við hefðum líka geta stolið sigrinum í leiknum og ég er dálítið svekktur með aðdraganda marks þeirra því Ashley Cole braut greinilega á Hleb.

Jafntefli er líklega ágæt niðurstaða en strákarnir voru greinilega mjög þreyttir síðustu tuttugu mínúturnar. Ég kaus að stilla upp fimm manna miðju til að veita ungu strákunum í vörninni stuðning gegn sterku liði og þeir gerðu það vel. Það er líklega of stórt sagt að halda því fram að við verðum í baráttunni um titilinn, en við erum sannarlega ekki sáttir við að vera þar sem við erum í töflunni í dag," sagði Wenger.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×