Innlent

Ammóníakleki í Hafnarfirði

Slökkviliðsmenn voru vandanum vaxnir.
Slökkviliðsmenn voru vandanum vaxnir. MYND/Vísir

Klukkan 17:13 í dag fékk slökkvilið Reykjavíkur tilkynningu um að 50 lítrar af ammóníum hefðu lekið úr frystitæki í fiskvinnslufyrirtæki í Hafnarfirði. Starfsmenn tóku eftir þess og létu vita og fóru efnakafarar frá slökkviliðinu í Hafnarfirði og lokuðu fyrir lekann. Engin hætta var á ferðum og engin slys urðu á fólki. Slökkviliðið lauk við að hreinsa efnið um átta í kvöld.

Efnið er í vökvaformi undir þrýstingi en verður að gastegund þegar það kemst í andrúmmsloftið og lyktar illa. En ef lyktin finnst er efnið hinsvegar ekki hættulegt.

Í Grýtubakka í neðra Breiðholti var kveikt í dagblöðum í póstkassa og lagði reyk um stigagang. Blöðin voru fjarlægð og þrífa þarf stigaganginn en tjónið er talið óverulegt. Nokkur útköll hafa þó verið af þessu tagi undanfarið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×