Enski boltinn

Southgate kallar á breytingar

Gareth Southgate
Gareth Southgate NordicPhotos/GettyImages

Gareth Soutgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough, vill að breytingar verði gerðar svo landsliðsmönnum sé kleift að sækja þjálfaranámskeið. Southgate er sjálfur á undanþágu með að stýra liði Boro, en hann bendir á að aðeins sé hægt að sækja námskeið í þjálfun á sumrin og að þá hafi landsliðsmenn engan tíma til að sækja slík námskeið.

"Það verður að breyta þessu og færa þessi námskeið, því landsliðsmenn hafa ekki tækifæri til að sækja þau. Ég spilaði sjálfur 10 sumur með enska landsliðinu og því hafði ég engan tíma til að fara á svona námskeið," sagði Southgate og bætti því við að hann hefði verið löngu búinn að næla sér í þjálfunarréttindi sín ef hann hefði ekki verið svo upptekinn með landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×