Enski boltinn

Henrik Larsson lánaður til Manchester United

Henrik Larsson styrkir framlínu Manchester United eftir áramót
Henrik Larsson styrkir framlínu Manchester United eftir áramót NordicPhotos/GettyImages

Sænska markamaskínan Henrik Larsson hefur samþykkt að fara til Manchester United sem lánsmaður í janúar. Larsson er 35 ára gamall og hefur leikið með liði Helsingborg í heimalandi sínu síðan hann varð Evrópumeistari með Barcelona í vor.

"Við reyndum að fá Larsson skömmu eftir að hann fór til Celtic á sínum tíma, en þeir náðu að telja hann á að vera áfram í Skotlandi. Þetta er frábært fyrir okkur, því í Larsson fáum við mann sem getur breytt gangi leiksins á augnabliki," sagði Alex Ferguson, en Larsson mun verða í láni hjá United frá byrjun janúar og fram til 12. mars þegar keppni hefst á ný í Svíþjóð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×