Enski boltinn

Mourinho segir Chelsea fara á toppinn fljótlega

Jose Mourinho á von á því að hans menn skelli sér á toppinn í deildinni fljótlega
Jose Mourinho á von á því að hans menn skelli sér á toppinn í deildinni fljótlega NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki hafa áhyggjur af því þó Manchester United hafi enn þriggja stiga forystu á sína menn á toppi ensku úrvaldsdeildarinnar og bendir á að Chelsea hafi spilað mun erfiðari leiki í deildinni til þessa.

"Ég held að við verðum komnir á toppinn áður en langt um líður og ég er sáttur við að vera aðeins þremur stigum á eftir United, því við höfum spilað mun erfiðari leiki en þeir. Nú er kominn tími til að vinna eins marga leiki í röð og við getum og koma okkur á toppinn sem fyrst. Ég er viss um að menn í herbúðum United eru ósáttir við að hafa bara þriggja stiga forskot í deildinni eftir þessa góðu sigurgöngu sína undanfarið," sagði Mourinho.

Alex Ferguson er ágætlega bjartsýnn á að sínum mönnum takist að halda toppsætinu. "Við vitum að það er mikið eftir af tímabilinu en ég held að strákarnir séu að átta sig á því að þeir eru í góðri aðstöðu til að afreka frábæra hluti í þessari deild. Það sem skiptir mestu máli núna er að við erum í þeirri aðstöðu að vera að horfa um öxl og verja forskot okkar fyrir Chelsea og það er betri aðstaða en við höfum notið síðustu tvö ár," sagði Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×