Heimildamynd um Slavoj Zizek 30. nóvember 2006 10:23
Heimildamynd um heimspekinginn Slavoj Zizek í leikstjórn Astra Taylor verður sýnd í kvöld, fimmtudaginn 30. nóvember, kl. 20. ReykjavíkurAkademíunni, JL-húsinu, 4. hæð (Hringbraut 121, 107 Rvk.) Aðgangur ókeypis Haukur Már Helgason, heimspekingur og rithöfundur fylgir myndinni úr hlaði. Slavoj Zizek er fæddur í Ljubljana, Slóveníu, 1949. Eftir nám og akademískan feril í heimspeki, sálgreiningu og félagsfræði á heimaslóðum og í París sóttist hann eftir forsetaembætti í heimalandi sínu árið 1990, en hlaut ekki kosningu. Þá hófst einhver mikilvirkasti útgáfuferill heimspekings á síðari tímum, en Zizek hefur gefið út rétt undir 20 titla á síðustu 16 árum og orðið eins konar poppstjarna á evrópskum og bandarískum kampusum, fyrir skrif sín og fyrirlestra. Skrif hans einkennast af pólitískri róttækni og hamslausum orðaflaumi. Óðamálið grundvallast einkum á tveimur höfundum, eða höfundatvennum: Lacan (og Freud) og Marx (og Hegel). Myndin sem Kviksaga tekur nú til sýninga er unnin í fullu samstarfi við heimspekinginn, sem tilraun til að nálgast bæði heimspeki hans og persónu, og að segja mætti til að hvort tveggja í senn afhjúpa og styðja við stöðu Zizeks sem óskráðs poppkonungs í heimi pólitískrar sálgreiningar við upphaf 21. aldar.
Lífið Mest lesið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fannst eins og hann væri eini fulli í brekkunni fyrir hádegi Lífið Helvítis kokkurinn: Gómsætar grillaðar lambakótelettur Lífið Götutíska fyrir íslenskar aðstæður Lífið Þurfti að vinda skyrtuna eftir tryllt gigg í Víetnam Tónlist Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Gyðjusamkoma með glæsilegum gellum Lífið Fleiri fréttir Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira