Innlent

Tveir grunaðir um fíkniefnasölu

Mennirnir höfðu meðal annars amfetamín undir höndum og höfðu búið efnin undir smásölu.
Mennirnir höfðu meðal annars amfetamín undir höndum og höfðu búið efnin undir smásölu. MYND/DEA

Lögreglan í Kópavogi handtók í nótt, tvo menn um tvítugt, grunaða um fíkniefnasölu. Eftir að fíkniefni fundust á öðrum, var gerð húsleit heima hjá honum og fundust þá 200 grömm af ýmsum fíkniefnum, aðallega hassi og anfetamíni, og var búið að pakka einhverju í smásöluumbúðir. Mönnunum var sleppt að yfirheyrslum loknum undir morgun, en rannsókn málsins verður fram haldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×