Innlent

Varar við afnámi styrkja í landbúnaði

MYND/GVA

Valdimar Einarsson, ráðgjafi á Nýja-Sjálandi, varar við afleiðingum þess að afnema styrkjakerfi íslensks landbúnaðar og að fella niður innflutningshömlur á erlendum landbúnaðarafurðum. Þetta kom fram í erindi hans á morgunverðarfundi Bændasamtaka Íslands sem haldinn var undir yfirskriftinni "Á að vera landbúnaður á Íslandi?" á Hótel Sögu í morgun.

Fram kemur í tilkynningu frá Bændasamtökunum að Valdimar telji að Íslendingar geti mikið lært af reynslu Nýsjálendinga þegar kemur að styrkjum til landbúnaðar en ekki væru þó hægt að bera saman landbúnað í löndunum tveimur meðal annars vegna þess að allar aðstæður á Nýja-Sjálandi væru einstaklega hagstæðar og að Nýsjálendingar framleiddu þriðjung allrar mjólkur á heimsmarkaði. Eðlilegra væri fyrir Íslendinga að miða samanburð í landbúnaði við t.d. Dani.

Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur, hélt einnig erindi á fundinum og gagnrýndi forystu ASÍ og þingmenn fyrir skilningsleysi á stöðu landbúnaðarins. Sagði hann aðilana ekki gera sér að fullu ljóst að íslenskur landbúnaður snerist ekki aðeins um bændur heldur væri hann bakhjarl margra þéttbýlisstaða á landsbyggðinni.

Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands, sagði í setningarræðu sinni á fundinum að til lítils væri barist ef lækkun á virðisaukaskatti á matvæli skilaði sér ekki alla leið til neytenda. Hann vísaði til reynslu finnskra bænda eftir inngöngu í Evrópusambandið. Verð á afurðum þeirra hefði lækkað um 50 prósent en ekki nema 10-11 prósent til neytenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×