Innlent

Mið tekið af auknum flutningum

Dómsmálaráðherra segir þörf á alþjóðlegu átaki ef alvarlegt umhverfisslys verði í olíuflutningum við Ísland. Sérfræðingar spá því að innan fárra ára fari fimm hundruð olíuskip um íslenskt hafsvæði á hverju ári. Ráðherrann segir tekið mið af þessu við endurbætur á núverandi varðskipum og smíði nýrra.

Í nýrir bók spáir Trausti Valsson, prófessor og skipulagsfræðingur, því að Ísland verði í þjóðleið sjóflutninga milli Kyrrahafs og Atlantshafs þegar flutningaleiðir opnist um leið og ís minnki í Norður-Íshafi. Spáir hann því að olíuflutningaskip sem fari framhjá landinu verði orðin 500 á ári eftir aðeins sjö til átta ár. Það auki hættuna á alvarlegum umhverfisslysum við strendur landsins. Fjárfesta þurfi í öflugum varðskipum ef stór flutningaskip lendi í vanda á leið sinni.

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að tekið hafi verið mið af þessu í allri áætlunargerð fyrir Landhelgisgæsluna. Endurbætur hafi verið gerðar á varðskipunum Ægi og Tý og miðað við að þau geti tekist á við stærri og þyngri skip með togvindum sínum. Auk þess sé nýtt varðskip á teikniborðinu og verið að semja við skipasmíðastöð um smíði þess. Þar sé þess einnig gætt að skipið hafi dráttargetu til að sinna stærri skipum. Auk alls þessa sé hugað að mengunarmálum.

Dómsmálaráðherra bendir á að ráðuneyti hans hafi efnt til ráðstefnu með fulltrúum beggja vegna Atlanthafsins þar sem sérfræðingar hafi verið fengnir til að ræða þróun mála í sjóflutningum á hafsvæðum nærri landinu. Það sé mat allra sem þar hafi setið að eitt ríki ráði ekki við þær hamfarir sem verði ef eitthvað komi fyrir skip af þeirri stærðargráðu sem hér um ræði. Því þurfi átak ríkja til að bregðast við slíku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×