Innlent

Umferðaröryggi á Íslandi meðal þess besta í Evrópu

Dr. Günter Breyer á Umferðarþingi í dag.
Dr. Günter Breyer á Umferðarþingi í dag. MYND/Umferðarstofa

Íslendingar eru í fremstu röð Evrópuþjóða hvað varðar umferðaröryggi að mati doktors Günters Breyers, aðstoðarvegamálastjóra Austurríkis og forstöðumanns tækni- og umferðaröryggissviðs samgönguráðuneytis landsins.

Breyer flutti erindi á Umerðarþingi á Hótel Loftleiðum í dag og benti á að í þeim löndum þar sem tíðni umferðarslysa er hæst væri fjöldi látinna í umferðinni um 200 á hverja milljón íbúa en um 50 þar sem tíðnin væri lægst. Hér á landi væri þetta hlutfall 78 látnir á hverja milljón íbúa og samkvæmt því væri Ísland í 8. sæti af 27 Evrópuþjóðum á listanum.

Fórnarlömbum umferðarslysa hefur fækkað í Evrópu frá árinu 1994 og er það fyrst og fremst að þakka auknu öryggi ökutækja, framþróun öryggisbúnaðar í bílum og átaki Evrópusambandsins þar að lútandi.

 

Fram kemur í tilkynningu frá Umferðarstofu að innan Evrópusambandsins sé lögð mikil áhersla á aukin gæði umferðarmannvirkja og er talið að það sé ein árangursríkasta leiðin til fækkunar umferðarslysa. Gerð hafi verið áætlun um aðgerðir til fækkunar umferðarslysa í Evrópu um helming á árunum 2001 til 2010 en það þýðir að fjöldi látinna myndi lækka úr 50 þúsundum í 25 þúsund.

Dr. Breyer gat þess að miðað við tölur ársins 2006 myndu aðildarlönd Evrópusambandsins ekki ná þessu takmarki en niðurstaðan gæti orðið 30 þúsund fórnarlömb. Það hefði þó átt sér stað jákvæð þróun varðandi fækkun umferðarslysa á milli áranna 2004 og 2005 sem veitti mönnum vonir um að takmarkið næðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×