Innlent

Aðeins ljósmyndarar mega taka myndir í vegabréf

Ljósmyndarar með iðnréttindi og nemar í ljósmyndun mega einir taka ljósmyndir í vegabréf samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur sem féll í dag. Ljósmyndarafélag Íslands höfðaði málið á hendur dómsmálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins.

Dómurinn viðurkenndi ekki kröfu Ljósmyndarafélagsins um að óheimilt væri að haga gjaldtöku við útgáfu íslenskra vegabréfa þannig að myndataka sé innifalin í kostnaði umsækjanda vegna útgáfu vegabréfs.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×