Innlent

Þjófar létu greipar sópa

MYND/Valli

Bíræfinn þjófur, eða þjófar, létu greipar sópa um alla skápa og hirslur í tveggja hæða einbýlishúsi í Mosfellsbæ í gærdag, þegar íbúar voru að heiman, og nemur andvirði þýfisins hundruðum þúsunda, ef ekki milljónum króna.

Þeir stálu meðal annars DVD spilurum, leikjatölvum, heimabíói, upptökuvélum og ýmsum öðrum rafeindatækjum, skartgripum, tugum þúsunda króna og auk þess erlendum gjaldeyri. Þjófarnir eru ófundnir, og sömuleiðis þjófarnir, sem brutust inn í gullsmíðaverkstæði í Grafarvogi í fyrri nótt og stálu þaðan verðmætum fyrir milljónir króna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×