Innlent

Reyndi að koma syni sínum ólöglega úr landi

Maðurinn reyndi að komast til Danmerkur með flugi Iceland Express frá Akureyri.
Maðurinn reyndi að komast til Danmerkur með flugi Iceland Express frá Akureyri. MYND/Kristján
Maður var handtekinn á Akureyrarflugvelli í morgun þegar hann reyndi að koma nokkurra mánaða syni sínum ólöglega úr landi. Feðganna hafði verið leitað dögum saman eftir að maðurinn rændi barninu.

Foreldrar barnsins eru frá höfuðborgarsvæðinu en samband þeirra endaði með skilnaði. Heimildir fréttastofu herma að í fyrstu hafi foreldrarnir skipt forræði en síðar orðið átök og heimildir föðurins til umgengni skertar í kjölfarið. Síðastliðinn laugardag fékk faðirinn að hitta son sinn, sem er aðeins nokkurra mánaða gamall, í kirkju í Reykjavík. Hann hafði samkvæmt úrskurði aðeins eina klukkustund til umráða með syninum en tókst að stinga af með barnið.

Eftir að maðurinn stakk af með son sinn voru lögregluyfirvöld meðal annars hérna á Akureyri látin vita, enda talið mögulegt að maðurinn myndi reyna að komast úr landi. Það var svo í morgun að fregnir bárust af því að maðurinn hefði keypt miða með Iceland Express og þá var brugðist við því.

Flugvél Iceland Express fór til Kaupmannahafnar eldsnemma í morgun. Þegar maðurinn hafði keypt miðana og var á leið í gegnum vopnaleitina með son sinn létu lögreglumenn til skarar skríða.

Þar sem barnið er mjög ungt hafði lögreglan mikla aðgæslu við handtöku mannsins en hún fór fram að lokinn vopnaleit. Barninu heilsast vel og maðurinn sýndi engan mótþróa við handtökuna.

Hjónin voru búsett í Danmörku en konan er nú flutt heim til Reykjavíkur. Hæstiréttur hefur úrskurðað móðurinni í hag en lögregla segir að fyrst og fremst sé um forræðisdeilu að ræða.

Barnayfirvöld flugu ásamt móður drengsins norður til Akureyrar eftir handtökuna og hefur móðirin fengið barnið í sínar hendur. Föðurnum hefur verið sleppt úr haldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×