Innlent

Landsvirkjun styrkir Ómar

Ómar á siglingu um Hálslón í haust.
Ómar á siglingu um Hálslón í haust. MYND/Gunnar

Landsvirkjun ætlar að styrkja verkefni Ómars Ragnarssonar, Örkina, um fjórar milljónir króna. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, lýsti þessu yfir í opnum fundi í morgun. Ómar óskaði eftir því að Landsvirkjun styrkti verkefni hans en Ómar hefur verið að kvikmynda myndun Hálslóns. Tekin verður formleg ákvörðun um styrkveitinguna á stjórnarfundi fyrirtækisins á morgun. Landvirkjun hefur einnig boðið Ómari aðstöðu á svæðinu.  

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×