Enski boltinn

Southgate fær að halda áfram

Gareth Southgate fær að halda áfram með lið Boro
Gareth Southgate fær að halda áfram með lið Boro NordicPhotos/GettyImages

Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu tilkynnti í dag að Gareth Soutgate hefði verið veitt undanþága til að sinna starfi knattspyrnustjóra Middlesbrough út keppnistímabilið þó hann hafi enn ekki aflað sér fullra réttinda til þess.

Í yfirlýsingu frá stjórninni segir að þessi undanþága sé einstaka tilvik og á engan hátt ætlað að setja fordæmi fyrir því að réttindalausir stjórar taki við liðum í úrvalsdeildinni. Talið er að það hafi vegið þungt í ákvörðun stjórnarinnar að forráðamenn Middlesbrough settu sig ekki á móti því þegar Steve McClaren var ráðinn landsliðsþjálfari á sínum tíma, en hann var sem kunnugt er stjóri Boro áður en hann tók við landsliðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×