Innlent

Eldur logaði í kjallara á Akureyri

Akureyri.
Akureyri. MYND/Vísir

Slökkviliðið á Akureyri var kallað að fjölbýlishúsi í Brekagili á sjötta tímanum í kvöld þar sem eldur logaði í kjallara hússins.

Kveikt hafði verið í pappír í sameign í kjallaranum og myndaðist mikill reykur sem lagði upp allan stigaganginn. Engum varð þó meint af en nokkuð tjón varð vegna reykskemmda. Talið er að um íkveikju hafi verið að ræða en lögreglan á Akureyri rannsakar nú málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×