Enski boltinn

Ferguson skammar enska fjölmiðla

Alex Ferguson er nú kominn með nýja aðstoðarmenn sér við hlið á varamannabekk Man. Utd.
Alex Ferguson er nú kominn með nýja aðstoðarmenn sér við hlið á varamannabekk Man. Utd. Getty Images

Alex Ferguson hefur komið fyrrum aðstoðarmanni sínum hjá Man. Utd. Og núverandi landsliðsþjálfara Englendinga, Steve McLaren, til varnar. Hann segir McLaren fá ósanngjarna meðferð hjá fjölmiðlum.

Ferill McLaren með enska liðið hófst með þremur sigrum á Grikkjum, Andorra og Makedóníu en í síðustu leikjum hefur spilamennska liðsins ekki verið upp á marga fiska og stjórinn því hlotið töluverða gagnrýni. Og Ferguson telur að gagnrýnin sé of mikil til að eiga rétt á sér.

“Hann fær það óþvegið frá fjölmiðlum í hvert sinni sem tækifæri gefst og það er synd. Ég skil heldur ekki af hverju fjölmiðlar hafa ekki meiri þolinmæði. Hann er nýbyrjaður og er að púsla saman nýtt lið. Ég hef fulla trú á honum og tel að hann eigi eftir að standa sig vel,” segir Ferguson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×