Enski boltinn

Martin Jol vill meiri hörku í lið Tottenham

NordicPhotos/GettyImages

Martin Jol hefur skorað á leikmenn sína að sýna meiri hörku á knattspyrnuvellinum og segir að leikmenn sína skorti nauðsynlegt "drápseðli" til að veita efstu liðunum í deildinni verðuga samkeppni.

"Okkur skorti sigurvilja og andlegan styrk í leiknum á sunnudaginn. Ég held að leikmennirnir séu ekki langt frá því að hafa það sem til þarf í þessu sambandi, en menn eru enn ekki nógu harðir. Menn geta verið landsliðsmenn og allt það - en það kemur að engu gagni ef menn leggja sig ekki alla fram og gera litlu hlutina sem til þarf til að vinna á vellinum," sagði Jol, en hans menn töpuðu stórt fyrir Reading á sunnudaginn eftir sigur á Chelsea í leiknum þar á undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×