"Jihad" er ekki heilagt stríð 14. nóvember 2006 14:06
Islamskur heimspekingur sem átti fund með Benedikt páfa segir að hann sé enginn sérfræðingur í trúfræðum múslima, en þyrsti í meiri fróðleik um trúna og vilji eiga einlægar viðræður við fylgjendur hennar. Mustapha Cherif er fyrrverandi menntamálaráðherra og sendiherra fyrir föðurland sitt, Alsír. Hann hefur verið virkur í skoðanaskiptum islamskra og kristinna fræðimanna. Cerif sagði að páfi væri mikill fræðimaður, en ekki sérfróður um islam. Hann upplýsti Benedikt meðal annars um að "jihad" þýddi í raun ekki heilagt stríð heldur réttlátt stríð, með reglum um framferði og verndun sakleysingja. Cherif sagði að hann hefði tjáð páfa að hugtakið "jihad" væri í raun það sama og heilagur Ágústínus hafi sagt um réttlátt stríð. Doktorsritgerð Benedikts páfa var einmitt um þennan fimmtu aldar dýrðling. Cherif sagði að páfi hefði orðið undrandi og sagt að þetta þyrfti að kynna betur. Um ósætti múslima við orð páfa í Regensburg sagði Cherif að það væri deila sem hann léti deilugjörnum eftir. Páfi hefði lýst iðrun vegna ummælanna og sjálfur væri hann sannfærður um góðan vilja hans til að eiga viðræður við múslima byggðar á gagnkvæmri virðingu. Það sé það sem meirihluti múslima vilji.
Erlent Fréttir Mest lesið Elduðu úti, óðu yfir vaktstjórann og fylltu matsalinn Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Tálbeitan var með einkabílstjóra og gisti á Edition Innlent Bauð leyniupptökur af spillingu í nafni ísraelsks njósnafyrirtækis Innlent Létu Staðarskála ekki duga og tóku yfir pitsustað Innlent Sagði að Þórdís myndi undirrita vegna tengsla Bjarna við Hval Innlent „Ásakanir Jóns Gunnarssonar eru rangar“ Innlent Ekki púað á Snorra Innlent Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Erlent „Ásakanir Svandísar í minn garð eru lygi frá rótum“ Innlent Fleiri fréttir Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Yfirmaður COP29 sagður hafa reynt að selja jarðefnaeldsneyti Ráðist á ísraelska stuðningsmenn í Amsterdam Trump velur starfsmannastjóra úr innstu röðum Spennuþrungin barátta um fulltrúadeildina Þrír handteknir vegna dauða Liam Payne Vilja banna 16 ára og yngri að nota samfélagsmiðla Fundu ellefu lík í yfirgefnum pallbíll Ávarp Bidens: „Þú getur ekki elskað nágranna þinn bara þegar þið eruð sammála“ Vill taka vantraustið fyrir strax Engin furða að verkafólk hafi snúið baki við Demókrataflokknum Ríkissjórn Scholz er sprungin Óskaði Trump til hamingju og ítrekaði friðsamleg valdaskipti Sjá meira