Enski boltinn

Eigum ekki möguleika á titlinum

NordicPhotos/GettyImages

Jose Reina segir að leikmenn Liverpool séu búnir að afskrifa möguleika sína á því að vinna enska meistaratitilinn, en hafi þess í stað sett stefnuna á að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næsta keppnistímabili.

"Við stefnum á að ná fjórða sætinu núna og verðum að berjast fyrir því. Það er líkelga að verða óraunhæft að ætla okkur að vinna deildina vegna þess forskots sem Manchester United og Chelsea eru búin að ná. Við ætlum okkur hinsvegar að tryggja okkur Meistaradeildarsætið og ég er ekki frá því að við séum betra lið í Meistaradeildinni en í ensku úrvalsdeildinni."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×