Menning

Tveimur sýningum að ljúka

MYND/Ari Sigvaldason

Nú um helgina lýkur tveimur athyglisverðum sýningum í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Þetta eru, Reykjavík - Úr launsátri: Ljósmyndasýning Ara Sigvaldasonar og Flóðhestar og framakonur: Afrískir minjagripir á Íslandi

Ljósmyndir Ara Sigvaldasonar eru allar svarthvítar og sýna mannlíf í Reykjavík sem fáir veita eftirtekt í daglegu amstri. Þær sýna lítil augnablik í lífi fólks á götum og opinberum stöðum borgarinnar, oft við skrítnar og skemmtilegar aðstæður.

Ari skilur myndavélina sjaldan við sig og laumast til að taka myndir af fólki, helst þannig að enginn taki eftir. Þannig má segja að myndirnar séu teknar úr launsátri án þess þó að nokkur eigi að bera skaða af.

Sýningin er sett upp í tilefni 220 ára afmælis Reykjavíkurborgar.

Flóðhestar og framakonur er athyglisverð sýning á afrískum minjagripum sem Ólöf Gerður Sigfúsdóttir mannfræðingur hefur safnað saman.

Sýningin samanstendur af skemmtilegri blöndu af gömlum munum og nýstárlegum fjöldaframleiddum gripum, en saman mynda þeir heild sem gefur góða mynd af minjagripaúrvali í Afríku.

Sýningarnar eru í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi og eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13 -16. Síðasti sýningardagur er sunnudagurinn 12. nóvember. Aðgangur er ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.