Enski boltinn

Auðvelt hjá Chelsea

Andriy Shevchenko var aldrei þessu vant á skotskónum hjá Chelsea í kvöld
Andriy Shevchenko var aldrei þessu vant á skotskónum hjá Chelsea í kvöld NordicPhotos/GettyImages

Chelsea burstaði Aston Villa 4-0 í enska deildarbikarnum í kvöld og er komið áfram í næstu umferð keppninnar líkt og Liverpool sem vann Birmingham 1-0 og Arsenal sem lagði Everton 1-0. Leikur Tottenham og Port Vale fór í framlengingu þar sem staðan var 1-1 að loknum venjulegum leiktíma.

Frank Lampard, Andriy Shevchenko, Michael Essien og Didier Drogba skoruðu mörk Chelsea í sigrinum á Aston Villa í kvöld. Liverpool lagði Birmingham 1-0 á St. Andrews með marki varnarmannsins Daniel Agger og Adebayor skoraði sigurmark Arsenal gegn Everton sem lék með 10 menn frá 19. mínútu eftir að McFadden var rekinn af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×