Enski boltinn

Björgólfur staðfestir samstarf við Eggert

Eggert og Björgólfur vinna nú að því að eignast knattspyrnufélagið West Ham
Eggert og Björgólfur vinna nú að því að eignast knattspyrnufélagið West Ham Mynd/Ómar

Björgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem hann staðfestir að hann sé maðurinn sem standi á bak við meirihluta þess fjármagns sem Eggert Magnússon hefur verið að raka saman til að gera kauptilboð í enska knattspyrnufélagið West Ham.

Breskir fjölmiðlar hafa sýnt þessu máli mikinn áhuga í dag og hefur hópur Eggerts og félaga loksins fengið aðgang að bókhaldi West Ham, þar sem þeir eru að kynna sér skuldastöðu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×