Menning

Heimsglaumur á Barnum

Í tilefni af útgáfu bókanna Fljótandi heimur, eftir Sölva Björn

Sigurðsson, og Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins, eftir Steinar

Braga, bjóða útgáfurnar Edda og Bjartur öllum velunnurum íslenskra

bókmennta í útgáfupartý á efri hæðinni á Barnum, Laugavegi 22,

fimmtudaginn 9. nóvember kl. 20:00. Í boði eru léttar veitingar og

snitta, auk þess sem óvæntir gestir munu ljá samkomunni

heimsborgaralegan sjarma. Klæðnaður kæruleysislegur.

Skáldsaga Steinars Braga, Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins:

Morð um borð: Skemmtiferðaskipið Heimurinn liggur við festar í

Reykjavíkurhöfn. Einum farþega þess, undarlegum manni, tekst að sannfæra einkaspæjarann Stein Steinarr og aðstoðarmann hans Mugg um að yfir vofi hræðilegir atburðir og að þeirra sé þörf um borð.

Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins er óður til gömlu glæpasögunnar,

og stórfenglegt listaverk framið af nær glæpsamlegu innsæi í mannlegt

eðli.

Skáldsaga Sölva, Fljótandi heimur:

Tómas er ungur stúdent af landsbyggðinni sem hefur háskólanám í

Reykjavík. Líf hans gjörbreytist þegar hann kynnist hinni hálfjapönsku

og dularfullu Saiko sem kynnir hann fyrir viskídrykkju og verkum Haruki

Murakamis. En myrkur hvílir yfir fortíð Saiko og þegar hún hverfur

skyndilega ákveður Tómas að leita hana uppi.

Í þessari spennandi og ljóðrænu sögu er hversdagslegu lífi í Reykjavík

samtímans teflt saman við veruleika þar sem stelpur lesa hugsanir,

hugarorka er til leigu og beinagrindur vaka yfir endimörkum heimsins.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.