Erlent

Norskan olíuborpall rekur stjórnlaust um Norðursjó

Olíuborpallur á Norðursjó.
Olíuborpallur á Norðursjó. MYND/Getty Images

Norska olíuborpallinn Bredford Dolphin rekur nú stjórnlaust um Norðursjó með um 75 manns um borð. Ofsaveður var á svæðinu þegar borpallurinn losnaði frá dráttarbáti,sem var með hann í togi.

Veður hefur lægt og er engin árekstrarhætta á ferðum. Varðskip er á leiðinni til þess að athuga hvort hægt sé að festa pallinn á ný. Engin meiðsl hafa orðið á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×