Enski boltinn

Með annað augað á leiknum við Barcelona

Jose Mourinho var sáttur við stigin þrjú í dag
Jose Mourinho var sáttur við stigin þrjú í dag NordicPhotos/GettyImages

Jose Mourinho viðurkenndi að hann hefði verið ánægður með sigurinn á Sheffield United í dag í ljósi þess að hann hefði gert nokkrar breytingar á liði sínu vegna leiksins við Barcelona í Meistaradeildinni í næstu viku.

"Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur því við gerðum nokkrar breytingar á liðinu og til að mynda var Shevchenko ekki með í dag. Við ákváðum líka að leyfa Makelele að hvíla í dag því hann er okkur svo mikilvægur fyrir leikinn á þriðjudaginn. Lið Sheffield gerði okkur erfitt fyrir í dag en við hefðum ef til vill átt að skora fleiri mörk og ég hugsa að menn hafi verið að reyna að spara sig aðeins fyrir átökin gegn Barcelona."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×