Erlent

Áfengi aðeins afgreitt gegn fingraförum

Þeir sem vilja kaupa sér svona gætu þurft að gefa fingraför á barnum.
Þeir sem vilja kaupa sér svona gætu þurft að gefa fingraför á barnum. MYND/Teitur

Þeir sem fara á bari eða skemmtistaði gætu brátt þurft að láta taka af sér fingraför á barnum í hvert skipti sem þeir kaupa sér áfengan drykk. Enska dagblaðið Metro segir frá þessu á heimasíðu sinni. Einnig gætu þeir sem ætla að kaupa sér drykk þurft að sýna vegabréf eða ökuskírteini og þessar upplýsingar yrðu síðan geymdar í gagnagrunni sem lögregla myndi hafa aðgang að. Þessar athuganir eru hluti af kerfi, sem fyrirhugað er að koma á um land allt í Bretlandi, er á að koma lækka tíðni áfengistengdra glæpa ásamt því að halda vandræðaseggjum frá börum og skemmtistöðum.

Verkefnið hefur verið í gangi í bænum Yeovil í Somerset á Englandi þar sem sex þúsund manns hafa tekið þátt með þeim áhrifum að áfengistengdir glæpir á svæðinu lækkuðu um 48% á aðeins sex mánuðum. Sumir staðareigendur voru ekki tilbúnir til þess að taka þátt í verkefninu en þeir voru þó sannfærðir, með hótunum um að endurkalla veitingaleyfi þeirra og loforðum um aukinn opnunartíma, að það væri hið eina rétta.

Mannréttindafrömuðir hafa hinsvegar mótmælt verkefninu og sagt að þetta minni um of á Stóra Bróður og ekki síst vegna þess að þetti geri ráð fyrir því að þeir sem drekki áfengi séu sekir uns annað er sannað. Guy Herbert, frá samtökunum No2ID hefur sagt að þetta sé svipað og að fólk þurfi að skilja eftir tryggingu í formi fingrafara sinna ef það ætlar að fá sér áfengan drykk. Doug Jewell frá mannréttindasamtökunum 'Frelsi' bætti við að peningarnir sem að fara í þessa áætlun gætu án efa nýst betur annars staðar hjá lögreglunni.

Tony Blair hefur hinsvegar sagt að það ætti alls ekki að takmarka útbreiðslu erfðaefnisgagnagrunna lögreglunnar þar sem þeir væru eitt helsta vopn lögreglunnar í baráttunni gegn glæpum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×