Erlent

Þjóðarflokkurinn kærir Nyhedsavisen

Ungliðahreyfing Danska þjóðarflokksins hefur kært dagblaðið Nyhedsavisen til fjölmiðlasiðanefndar vegna myndbirtingar þess af lokaðri samkomu hreyfingarinnar. Á samkomunni höfðu ungliðarnir Múhameð spámann að háði og spotti, múslimum víða um heim til mikillar gremju. Í kæru ungliðanna segir að þar sem andlit nokkurra þeirra hafi verið auðþekkjanleg af myndunum hafi þeir fengið morðhótanir og því orðið að flýja heimili sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×