Erlent

500 konur í kynlífsþrælkun á Kanaríeyjum

Lögregla í Búlgaríu og á Spáni hefur upprætt alþjóðlegan glæpahring sem lokkaði um fimmhundruð ungar búlgarskar  konur til Kanaríeyja, þar sem þær voru neyddar í kynlífsþrælkun. Saksóknarar á Spáni hafa nú lagt fram kærur á hendur þrjátíu og þriggja manna.

Fimmtán þeirra eru frá Búlgaríu en hinir eru frá Spáni, Rússlandi, Serbíu, Úkraínu, Slóvakíu, Ekvador og Dóminikanska lýðveldinu. Konunum hafði verið lofað vinnu í ferðamannaparadís, þar sem þær gætu lifað í vellystingum pragtuglega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×