Erlent

Mannskæð árás í norðurhluta Sri Lanka

Að minnsta kosti sextíu og sjö eru látnir eftir sjálfsmorðssprengjuárás á bílalest hersins í norðurhluta Sri Lanka. Tugir manna eru slasaðir.

Árásarmaðurinn keyrði vöruflutningabíl með sprengiefnum inn á svæði þar sem fyrir voru fimmtán rútur fullar af sjóliðum. Hópur Tamíltígra er taldinn bera ábyrgð á árásinni en mikil spenna hefur verið á milli þeirra og hersins undanfarið. Talið er að árásin geti haft áhrif á friðarviðræður sem fyrirhugaðar eru í Genf í Sviss í lok mánaðarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×