Erlent

Faldi sig í helli

Kínverskur maður hefur gefið sig fram við lögreglu eftir að hafa falið í helli í tæpan áratug. Maðurinn, Liu Yong sem er 35 ára og búsettur í borginni Fuzhou í suð-austur hluta Kína, gróf hellinn í hól í bakgarði sínum og hefur haldið þar til í átta ár.

Hann dró fataskáp fyrir hellismunnann til að koma í veg fyrir að vart yrði við felustaðinn. Liu Yong yfirgaf hellinn að degi til og fór inn í hús sitt til að þvo sér, lesa og horfa á sjónvarp. Að kveldi fór hann svo aftur í hellinn sinn.

Liu Yong segist hafa verið að fela sig fyrir innheimtumönnum auk þess sem hann er sakaður um að hafa ógnað fólki sem kom að heimili hans með byssu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×