Erlent

4 bandarískir hermenn féllu í Írak

MYND/AP

Fjórir bandarískir hermenn féllu í árás nærri Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag. Þetta er í annað sinn á tveimur dögum sem mannskæð árás er gerð á hersveitir Bandaríkjamanna nærri höfuðborginni.

Í tilkynningu frá hernum segir að hryðjuverkamenn hafi ráðist á hersveitina í morgun. Skotið hafi verið á hermennina þar sem þeir hafi verið á ferð norð-vestur af Bagdad.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×