Erlent

Sprenging í Pakistan

Pervez Musharraf, forseti Pakistan.
Pervez Musharraf, forseti Pakistan. MYND/AP

Lögreglan í Pakistan fann í dag sprengiefni í garði nálægt heimili Pervez Musharraf, forseta landsins í borginni Rawalpindi. Það gerðist eftir að sprenging heyrðist þar í borg. Enginn féll eða sæðrist.

Húsið er aðsetur forsetans á herstöð í borginni. Sprengjusérfræðingar voru þegar sendir á staðinn eftir sprenginguna og það voru þeir sem fundu sprengiefnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×