Erlent

Fyrirfór sér eftir að hafa skotið gísl

MYND/AP

Gíslatökumaðurinn í skóla í Colorado í Bandaríkjunum fyrirfór sér eftir að hafa skotið stúlku sem hann hélt í gíslingu. Stúlkan, sem er nemandi í skólanum, lifði árásina af en er þó alvarlega slösuð.

Ekki er vitað hvers vegna maðurinn réðst inn í skólann fyrr í dag. Hann hóf skothríð og tók svo sex manns í gíslingu en sleppti fljótlega fjórum þeirra. Lögreglan ákvað að láta til skara skríða gegn gíslatökumanninum eftir að hann sleit samningaviðræðum við sérsveitarmenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×