Innlent

14 ára tekinn á mótorkrosshjóli

Nokkuð er kvartað yfir akstri mótorkrosshjóla og ein slík barst lögreglunni í Reykjavík í gær. Hún kannaði málið og skömmu síðar birtust tvö þannig ökutæki en ökumenn þeirra reyndu að aka á brott.



Lögreglan náði öðrum þeirra og reyndist ökumaðurinn vera réttindalaus en hann er 14 ára. Báðum hjólunum var ekið um þar sem börn voru að leik. Pilturinn mun hafa fengið samþykki móður sinnar fyrir akstrinum en hann hafði lofað að halda sig í götunni við heimili sitt. Áréttar lögregla að enginn geti veitt leyfi fyrir slíkum akstri, ekki einu sinni foreldrar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×