Innlent

Mætti með loftbyssu í skólann

Lögreglan í Reykjavík hafði nýverið afskipti af grunnskólanema sem kom með loftbyssu í skólann. Fram kemur á vef lögreglunnar að sá hafði skotið á tvo skólafélaga sína og marðist annar þeirra. Hér var um óviljaverk að ræða en engu að síður var byssan gerð upptæk eins og alltaf í málum sem þessum. Segir lögregla að loftbyssur séu stórhættulegar og eigi aldrei að vera í höndum barna og unglinga. Lögregla lagði hald á þrjár loftbyssur í jafnmörgum skólum í fyrra og segir lögregla að vitað sé að slíkar byssur hafi verið keyptar í sólarlandaferðum og síðan smyglað til landsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×