Fótbolti

Ánægður með markalaust jafntefli

Rafa Benitez fór til Hollands til að halda hreinu og tókst ætlunarverkið
Rafa Benitez fór til Hollands til að halda hreinu og tókst ætlunarverkið NordicPhotos/GettyImages

Rafa Benitez var mjög ánægður með að ná markalausu jafntefli á útivelli gegn hollenska liðinu PSV Eindhoven í meistaradeildinni í kvöld og varði ákvörðun sína um að hafa marga af lykilmönnum sína á varamannabekknum með því að segja að þeir hefðu einfaldlega ekki úthald í að spila alla þá leiki sem á dagskránni væru.

"Ég er ánægður með að koma hingað til Hollands og ná að halda hreinu. Ég lagði upp með það fyrir leikinn að halda hreinu og við náðum að skapa okkur nokkur ágæt marktækifæri, en náðum ekki að nýta þau.

Ástæðan fyrir því að ég var með þessa menn á varamannabekknum í dag var sú að þeir hafa bara ekki úthald í að spila alla þessa leiki. Við spiluðum gríðarlega erfiðan leik gegn Everton um helgina og því verð ég að reyna að dreifa álaginu eins og ég get á liðið og nýta breiddina," sagði Benitez.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×