Innlent

Bandarískir hermenn valda skemmdum á mosku

Mynd/AP
Töluverðar skemmdir urðu á mosku í írösku borginni Ramadi í gær þegar bandarískir hermenn skutu á hana. Til skotbardaga kom milli hermanna og herskárra andspyrnumanna sem héldu til í moskunni. Einn bandarískur hermaður særðist í átökunum og þrír féllu inni í moskunni og tuttugu og þrír særðust. Talsmaður Bandaríkjahers segir andspyrnumennina hafa skotð með vélbyssum á hermennina og kastað að þeim handsprengjum. Hermenn skutu í fyrstu af byssum sínum en síðan úr skriðdreka sem þeir voru á. Átökin blossuðu upp skömmu áður en föstudagsbænir áttu að hefjast í moskunni. Einn vegfarandi segir eld hafa kviknað í nálægum banka þegar skothríðin skall á honum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×